Fara í efni

Galtarlækur - breyting á aðalskipulagi 2020 - 2032

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 23. janúar 2025 að auglýsa skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir jörðina Galtarlækur, L133627, í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Svæðið sem um ræðir er neðan þjóðvegar 1 og er í gildandi aðalskipulagi skilgreint sem landbúnaðarland. Samhliða breytingu á aðalskipulagi er unnið deiliskipulag fyrir svæðið. Áætlað er að stærð Galtarlækjar sé um 127 ha en stærð skipulagssvæðisins um 80 ha. Fyrirhugað er að á svæðinu verði starfsemi sem hýsi vörugeymslur, geymslusvæði, léttan iðnað og ýmiss konar þjónustusvæði, t.d. vegna hafnsækinnar starfsemi. Gert er ráð fyrir höfn og viðlegukanti sem muni þjónusta flutningaskipum og skemmtiferðaskipum. Stærsti hluti skipulagssvæðisins einkennist af fremur gróðursnauðum melum og mólendi en næst hringvegi 1 eru nokkur aflögð tún. Landið er nokkuð hæðótt og í aflíðandi halla frá hringvegi 1 og niður í grýtta fjöru.

Skipulagslýsing fyrir Galtarlæk

Ofangreind tillaga er auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is)
frá  30. janúar – 27. febrúar 2025.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma.
Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í skipulagsgáttina.
Ef óskað er nánari kynningar á tillögunni skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar Hvalfjarðarsveitar