Fjármál og tölfræði
Fjármál
Hægt er að nálgast upplýsingar um sveitarfélög á Íslandi í gagnagrunni sem ber heitið Upplýsingaveita sveitarfélaga. Verkefni þetta var unnið á sínum tíma í samvinnu við Sambands íslenskra sveitarfélaga, Hagstofu Íslands og Félagsmálaráðuneytið. KPMG var faglegur ráðgjafi á ýmsum sviðum í tengslum við þetta verkefni. Þær upplýsingar sem er að finna í gagnagrunninum koma fyrst og fremst úr ársreikningum sveitarfélaga eða frá Hagstofu Íslands sem hefur safnað þeim frá sveitarfélögunum. Markmið verkefnisins er að hafa sem mestar upplýsingar sem varða sveitarfélögin tiltækar á einum stað og aðgengilegar fyrir alla þá sem áhuga hafa. Síðuna í heild sinni má sjá hér.
Í gagnagrunninum er nú að finna upplýsingar um eftirfarandi efnisatriði:
- Ársreikninga sveitarfélaga, sundurliðaðir á málaflokka
- Útsvar og fasteignaskatt
- Grunnskóla
- Leikskóla
- Greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
- Íbúafjölda sveitarfélaga
- Flatarmál sveitarfélaga
Upplýsingum verður bætt í gagnagrunninn jafnóðum og mögulegt er þannig að í honum verði á hverjum tíma að finna víðtækar upplýsingar um rekstur sveitarfélaga og margháttuð önnur atriði sem tengjast sveitarstjórnarstiginu á Íslandi.