Fara í efni

Vorhreinsun 2018

Nú fer að koma að hinni árlegu vorhreinsun í Hvalfjarðarsveit og eru íbúar, sumarhúsaeigendur og rekstraraðilar hvattir til að taka til hjá sér fyrir sumarið.

 

Á tímabilinu 18. maí til 4. júní verða gámar staðsettir í Melahverfi, Hlíðarbæ og Krosslandi.

Gámur fyrir timbur

Gámur fyrir járn og bíldekk

Gámur fyrir gróðurúrgang

Kör fyrir rafgeyma og spilliefni

 

Frá 1. júní – 31. ágúst gefst íbúum í dreifbýli kostur á að fá tvær gerðir af gámum, timburgám, járn- og dekkjagám og /eða gróðurúrgangsgám senda heim í tvo sólarhringa. Þessa þjónustu þarf að panta með tveggja daga fyrirvara í síma 433-8500.

 

Íslenska Gámafélagið býður uppá þá þjónustu að losa íbúa Hvalfjarðarsveitar í dreifbýli við rafgeyma og spilliefni. Þessa þjónustu þarf að panta í síma 433-8500 og starfsmenn Íslenska Gámafélagsins munu koma og sækja.

 

Vakin er athygli á að reglum sveitarfélagsins varðandi vorhreinsun var breytt í fyrra.

Því er lögð áhersla á að aðilar kynni sér nýjar reglur áður enn sótt er um gáma.

Hér er hægt að skoða reglurnar !

 

 

Sumarkveðja,

 

Lulu Munk Andersen, skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar.

Sigrún Mjöll Stefánsdóttir, ritari Hvalfjarðarsveitar.