Fara í efni

Vorhreinsun 2017

Nú fer að koma að hinni árlegu vorhreinsun í Hvalfjarðarsveit og eru íbúar, sumarhúsaeigendur og rekstraraðilar hvattir til að taka til hjá sér fyrir sumarið.

Vakin er athygli á að reglum sveitarfélagsins varðandi vorhreinsun hefur verið breytt.

Því er lögð áhersla á að aðilar kynni sér nýjar reglur áður enn sótt er um gáma.

Hægt er að skoða reglurnar á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar (sjá hér)

Hvað má fara í gámana (sjá hér)

 

Á tímabilinu 16. maí til 30. maí verða gámar staðsettir í Melahverfi, Hlíðarbæ og Krosslandi.

·         Gámur fyrir timbur

·         Gámur fyrir járn og bíldekk

·         Gámur fyrir gróðurúrgang

·         Kör fyrir rafgeyma og spilliefni

 

Frá 1. júní – 30. ágúst gefst íbúum í dreifbýli kostur á að fá tvær gerðir af gámum, timburgám, járn- og dekkjagám og /eða gróðurúrgangsgám senda heim í tvo sólarhringa. Þessa þjónustu þarf að panta með tveggja daga fyrirvara í síma 433-8500.

Íslenska Gámafélagið býður uppá þá þjónustu að losa íbúa Hvalfjarðarsveitar í dreifbýli við rafgeyma og spilliefni. Þessa þjónustu þarf að panta í síma 433-8500 og starfsmenn Íslenska Gámafélagsins munu koma og sækja.

Sumarkveðja,
 

Lulu Munk Andersen, skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar.

Sigrún Mjöll Stefánsdóttir, ritari Hvalfjarðarsveitar.