Vorferð eldri borgara
04. júní 2024
Vorferðarlag eldri borgara (60 ára og eldri) hefur verið frestað um viku og farið verður miðvikudaginn 12. júní nk.
Enn hægt að bóka sig í ferðina.
Farið verður norður yfir Holtavörðuheiði í Húnaþing vestra.
Lagt verður upp frá Stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi og farið á Hvammstanga og nágrenni undir leiðsögn Karls Sigurgeirssonar frá Bjargi í Miðfirði. Að því loknu verður Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra sótt heim og boðið verður upp á léttan hádegismat. Kvöldverður verður snæddur á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi.
Brottför frá Stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi kl 8:30 miðvikudaginn 12. júní nk.
Kostnaður við ferðina er kr. 10.000 pr. mann og greiðist við skráningu.
Innifalið í verðinu er rúta, fararstjóri, aðgangseyrir að safni og kvöldverður.
Skráning og greiðsla á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar fyrir lok dags, 10. júní nk. í síma 433-8500.
Einnig er í boði að leggja greiðslu inn á reikning sveitarfélagsins, 0186-26-6303, kt. 630606-1950 og senda staðfestingu á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.
Nánari upplýsingar veita Sigrún í síma 692-9381 og Ingibjörg í síma 867-2248.