Vinsamleg tilmæli
26. ágúst 2020
Undanfarin misseri hefur umkvörtunum vegna ágangs sauðfjár í einkalönd farið fjölgandi í Hvalfjarðarsveit. Í ljósi þessa beinir sveitarstjórn því til landeigenda að hver hugi að sínu og virði lög og reglur er við eiga um girðingar og búfé.
Með von um jákvæðar viðtökur og viðbrögð.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.