Viðburðastjóri Hvalfjarðardaga 2015
Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir áhugasömum verktaka til að taka að sér umsjón með undirbúningi og framkvæmd Hvalfjarðardaga sem haldnir verða 28. – 30. ágúst 2015.
Hvalfjarðardagar eru hátíð sem sprottin er upp úr grasrótarstarfi ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu. Undanfarin ár hafa sífellt fleiri aðilar í Hvalfjarðarsveit tekið þátt í verkefninu og má þar nefna einstaklinga og félagasamtök auk sveitarfélagsins.
Í umsjóninni felst m.a. að taka á móti hugmyndum að viðburðum, skipuleggja þá og útbúa dagskrá ásamt því að halda utan um samskipti þeirra aðila sem standa að Hvalfjarðardögum. Ennfremur að annast framkvæmd hátíðarinnar í samráði við skipuleggjendur og annast allt uppgjör.
Æskilegt er að verktaki hafi reynslu á sviði viðburðarstjórnunar og kostur ef viðkomandi þekkir til í Hvalfjarðarsveit.
Nánari upplýsingar um starfið má nálgast í tölvupósti á netfangið jonella.sigurjonsdottir@hvalfjardarsveit.is
Umsóknum skal skila á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is fyrir 21. maí 2015
Hvalfjarðarsveit 6. maí 2015
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.