Vesturbrú – viðskiptahraðall, opið fyrir skráningar
Vesturbrú er sex vikna hraðall fyrir verkefni sem stuðla að sjálfbærri framtíð Vesturlands. Markmið hraðalsins er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu.
Viðskiptahraðallinn Vesturbrú er ætlaður frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Vesturlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja komast lengra með sín verkefni. Sótt er um í teymum, en æskilegt er að þau samanstandi af einum til þrem einstaklingum. Teymin geta verið starfsfólk fyrirtækja, sem standa að verkefninu eða sjálfstæðir frumkvöðlar í startholunum. Hraðallinn er sérhannaður með þarfir þátttökuteymanna í huga, þannig hafa teymin áhrif á fræðsluna sem stendur þeim til boða.
Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Vesturlandi og víðar á einkafundum. Dagskráin samanstendur einnig af ráðgjafafundum, vinnustofum, fræðslufundum og þátttakendur mynda sterkt tengslanet sín á milli.
Hraðallinn leggur áherslu á nýjar hugmyndir og þróun fjölbreytts atvinnulífs til að stuðla að sjálfbæru Vesturlandi. Vesturbrú fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast jafnframt þrisvar sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Vesturlandi.
Hraðallinn er í samvinnu við RATA sem hefur undanfarin ár unnið að því að styðja við umhverfi frumkvöðla á Íslandi og hefur m.a. haldið utan um viðskiptahraðlana Sóknarfæri á Suðurlandi og Vaxtarrými í Norðanátt á Norðurlandi.
Haldinn var rafrænn kynningarfundur, fimmtudaginn 9. nóvember sl. þar sem farið var yfir skipulag hraðalsins og hvað felst í þátttöku. Upptöku af fundinum má sjá hér.
Umsóknarfrestur í Vesturbrú er til 15. nóvember og skulu umsóknir sendar inn í gegnum skráningaform hér.
Viðskiptahraðallinn er þátttakendum að kostnaðarlausu fyrir utan ferðakostnað.
Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands. Nánari upplýsingar má finna á vef Vesturbrúar.