Útboð á sorphirðu í Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppi.
21. júlí 2017
Sorphirða í Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppi 2017-2022.
Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppur óska eftir tilboðum í sorphirðu fyrir heimili og rekstur grenndarstöðva.
Útboð þetta er auglýst á EES svæðinu.
Helstu magntölur:
Sorpílát 220 stk
Grenndarstöðvar 20 stk
Verktími er frá 1. desember 2017 til 30. nóvember 2022.
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is,
þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, og nafn, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda.
Tilboð verða opnuð í ráðhúsi Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes, fimmtudaginn 24.ágúst 2017 kl. 11.00.
Skipulagsfulltrúi Hvalfjarðarsveitar