Uppbyggingarsjóður Vesturlands hefur opnað fyrir umsóknir
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands - úthlutun september 2023.
Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.
Í þessari úthlutun eru veittir styrkir til atvinnuþróunar og nýksöpunar. Ekki eru veittir styrkir í menningarhluta.
Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér.
Umsækjendur eru beðin um að kynna sér vel reglur og viðmið varðandi styrkveitingar.
AÐSTOÐ VIÐ UMSÓKNIR – SMELLIÐ FYRIR NÁNARI UPPLÝSINGAR
Atvinnu- og nýsköpunarverkefni:
Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is 895-6707
Hrafnhildur Tryggvadóttir hrafnhildur@ssv.is 849-2718
Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is 898-0247
Skrifstofa SSV uppbyggingarsjodur@ssv.is 433-2310