Undirskriftasöfnun í Hvalfjarðarsveit vegna almennrar atkvæðagreiðslu
27. janúar 2020
Hafin er undirskriftarsöfnun í Hvalfjarðarsveit vegna óskar um almenna atkvæðagreiðslu vegna ákvörðunar sveitarstjórnar um sölu ljósleiðarakerfis í eigu Hvalfjarðarsveitar.
Undirskriftarsöfnun lýkur 24. febrúar 2020.
Ábyrgðarmenn söfnunarinnar eru Sigurður Aðalsteinsson, Ómar Örn Kristófersson og Jóhanna G. Harðardóttir.
Undirskriftarlista má finna á slóðinni: https://listar.island.is/Stydjum/55