Umsóknir um styrki til Styrktarsjóðs Hvalfjarðarsveitar
Á grundvelli samþykktar sveitarstjórnar varðandi reglur styrktarsjóðsins er hér með óskað eftir umsóknum. Umsóknarfrestur er til 22. apríl nk. og reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is
Styrkumsóknir skulu berast sveitarsjóði og undirritaðar af umsækjanda og/eða aðila sem heimild hefur að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjanda ef um félag eða hópa er að ræða. Mikilvægt er að greinargóðar upplýsingar komi fram í umsókn. Heimilt er að vísa frá umsóknum ef fullnægjandi upplýsingar koma ekki fram.
Félög og/eða hópar sendi inn ársreikning síðasta liðins árs og fjárhagsáætlun þess árs sem um ræðir.
Umsóknir skulu stílaðar á:
Styrktarsjóður Hvalfjarðarsveitar Stjórnsýsluhúsinu,
Innrimel 3,
301 Akranes.
Eða á netfangið:
hvalfjardarsveit@hvafjardarsveit.is