Fara í efni

Umsóknir í Afrekssjóð

Skila þarf inn umsóknum fyrir Afrekssjóð fyrir 28. febrúar næstkomandi. 

a)      Afreksstyrkir eru ætlaðir til þess að styðja við bakið á afreksfólki sem á lögheimili í Hvalfjarðarsveit. 

b)      Umsækjandi þarf að hafa skarað fram úr og/eða hafa fengið viðurkenningu fyrir störf/afrek sín á sviði íþrótta.

c)      Afrekssjóður veitir styrki vegna þátttöku í fjölþjóðlegum mótum, sýningum erlendis og ferðastyrk vegna íþrótta.

Hægt er að nálgast reglur um Afrekssjóð í heild sinni og umsóknareyðublað á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar.  Afrekssjóður er í umsjá Fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar.

Félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar