Fara í efni

Umsjónarmenn Opins húss eldri borgara

Óskað er eftir einstaklingum til að sjá um félagsstarf fyrir eldri borgara í Hvalfjarðarsveit frá september til og með maí.  Félagsstarfið sem um ræðir er svokallað Opið hús í Fannahlíð sem er haldið þriðja miðvikudag í hverjum mánuði frá kl. 16-18.  Helstu verkefni eru að skipuleggja og halda utan um það félagsstarf sem fram fer í Opnu húsi og að sinna akstursþjónustu fyrir þá einstaklinga sem þess þarfnast til að komast til og frá Fannahlíð.  Reynsla í vinnu með öldruðum er æskileg.  Nauðsynlegt er að hafa bíl til umráða.   Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar í s: 433-8500. Umsóknarfrestur er til 1.september 2015.