Umsjónaraðili félagsmiðstöðvar
15. ágúst 2016
Hvalfjarðarsveit óskar að eftir ráða einstakling til að sjá um félagsstarf unglinga í 301 Félagsmiðstöð skólaárið 2016-2017. Helstu verkefni umsjónaraðila eru að skipuleggja og halda utan um það félagsstarf sem fram fer í félagsmiðstöðinni. Umsjónaraðili skal vera 20 ára eða eldri. Reynsla af störfum með börnum og unglingum er æskileg. Nauðsynlegt er að umsjónaraðili hafi bíl til umráða. Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500. Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst 2016. Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Hvalfjarðarsveit 12. ágúst 2016
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.