Umsækjendur um starf skrifstofustjóra
Hvalfjarðarsveit bárust níu umsóknir um starf skrifstofustjóra sem nýverið var auglýst til umsóknar. Umsóknarfrestur var til og með 19. júlí sl. Umsækjendur um starf skrifstofustjóra Hvalfjarðarsveitar eru:
Benjamín Gíslason
Erna Rafnsdóttir
Hilmar Þór Hafsteinsson
Ingunn Stefánsdóttir
Lúðvík Júlíusson
Ólafur Ólafsson
Salvör Sigríður Jónsdóttir
Svandís Edda Halldórsdóttir
Þorvaldur Hjaltason
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur falið Björgvini Helgasyni, oddvita, Atla Viðari Halldórssyni, sveitarstjórnarfulltrúa, Daníel Ottesen, sveitarstjórnarfulltrúa, og Lindu Björk Pálsdóttur, sveitarstjóra að meta umsóknir, taka viðtöl við umsækjendur og leggja fyrir sveitarstjórn tillögu um ráðningu í starfið.
Hvalfjarðarsveit 25. júlí 2018
Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri