Fara í efni

Tilkynning vegna Lækjarmels 7

Að gefnu tilefni telur sveitarstjórn rétt að fram komi að Hvalfjarðarsveit hefur keypt fasteignina að Lækjarmel 7 í Hvalfjarðarsveit. Er sú ráðstöfun hluti af starfslokasamningi milli Hvalfjarðarsveitar annars vegar og fyrrverandi skólastjóra leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar hins vegar. Kaupverð eignarinnar var samkvæmt verðmati óháðs fasteignasala. Um er að ræða  fasteign sem byggð er árið 2006 og í góðu standi. Ekki er gert ráð fyrir því að sveitarfélagið beri fjárhagslegan skaða af kaupunum, enda er um góða eign að ræða og hefur húsið nú verið sett í sölumeðferð.

 

Efni og ástæður starfslokanna verða ekki tilgreind hér frekar. Starfslokasamningar af þessu tagi eru ekki óalgengir og er ekkert í ákvæðum þessa samnings sem getur talist óvenjulegt eða umfram það sem algengt er í slíkum samningum. 

 

Samkvæmt eðli máls er samningurinn trúnaðarmál þó framangreint sé upplýst.

 

F.h. sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.