Tilkynning til íbúa í Melahverfi
22. nóvember 2024
Hvalfjarðarsveit vinnur að endurskoðun deiliskipulags fyrir Melahverfi.
Í tengslum við deiliskipulagsvinnuna þarf að gps-mæla staðsetningu húsa, lóðarveggja ofl., í Lækjarmel, Innrimel og Hagamel.
Á næstunni mun starfsmaður Verkís verkfræðistofu vinna að þessum mælingum í Melahverfi og mega lóðarhafar eiga von á að farið verði inn á lóðir í þessu sambandi.
Hafa má samband við starfsfólk Umhverfis- og skipulagsdeildar Hvalfjarðarsveitar ef frekari spurningar vakna varðandi þetta.
Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar