Fara í efni

Tilkynning til íbúa í Melahverfi

Ágætu íbúar, á næstu dögum verður farið í gatnaframkvæmdir í Melahverfi. Um er að ræða nýja götu Háimelur og hluti af Brekkumel. Áætluð verklok eru 15. október 2016.

Við biðjumst velvirðingar á raski sem gæti stafað af framkvæmdinni.

Melahverfi ll - Deiliskipulagsuppdráttur

Með kærri kveðju

Guðný Elíasdóttir

byggingarfulltrúi Hvalfjarðarsveitar