Fara í efni

Tilkynning frá fræðslu- og skólanefnd Hvalfjarðarsveitar.

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar  þann 14. október sl. var samþykkt að fela fræðslu- og skólanefnd að vinna að mótun stefnu í íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum fyrir sveitarfélagið.
Nefndin hefur þegar hafið vinnu við verkefnið en stefnt er að ljúki því eigi síðar en 1. febrúar nk.
Við verkefni sem þetta er samræða við íbúana grundvallaratriði og ráðgerir nefndin að boða til íbúaþinga/samræðuvettvangs um málefnið síðar á árinu.  Nefndin telur afar mikilvægt að fá fram hugmyndir og skoðanir íbúa og vill virkja sem flesta við undirbúning og vinnu þessa verkefnis.  Endilega sendið nefndinni hugmyndir ykkar um það sem svona stefna á að taka á og hvað á ykkur brennur í þessu sambandi. Netfangið er: hjordis.stefansdottir@hvalfjardarsveit.is