Fara í efni

Þróunarfélag Grundartanga stofnað

Þann 7. júlí sl. var stofnfundur Þróunarfélags Grundartanga ehf. haldinn í Hvalfjarðarsveit. Stofnaðilar félagsins eru; Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Faxaflóahafnir sf., Hvalfjarðarsveit, Reykjavíkurborg og Skorradalshreppur. Unnið hefur verið að stofnun félagsins í töluverðan tíma en viljayfirlýsing um stofnun þess var undirrituð í nóvember 2014.

Þróunarfélagi Grundartanga er ætlað að vinna að framfaramálum á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit með það að markmiði að stuðla að uppbyggingu á atvinnustarfsemi á Grundartanga og í aðildarsveitarfélögum. Í hluthafasamkomulaginu segir „Hlutverk félagsins er að efla og bæta skilyrði fyrir stofnun og rekstur fyrirtækja á Grundartanga, með áherslu á umhverfisvæna starfsemi og bætta nýtingu hráefna sem tryggir sem best jafnvægi milli nýtingar og náttúruauðlinda og verndunar þeirra.“

Félaginu er einnig ætlað að móta framtíðarsýn fyrir svæðið með umhverfissjónarmið að leiðarljósi, ásamt því að taka saman og kynna tölfræðilegar upplýsingar sem varða lýðfræði umhverfismál og aðrar upplýsingar sem svæðið varða. Félagið hyggst kynna svæðið sem valkost fyrir framleiðslu og þjónustu fyrirtæki og skoða möguleika á samstarfi við erlenda aðila með umhverfisvernd að leiðarljósi.