Í dag er síðasti starfsdagur Kristjönu „pósts“ sem af alúð og dyggð hefur annast póstþjónustu í Hvalfjarðarsveit sl. fjóra áratugi. Af þessu tilefni var Kristjönu færður örlítill þakklætisvottur f.h. sveitarfélagsins um leið og við óskum henni gæfu og gleði um ókomna tíð.