Sundlaugin að Hlöðum - rekstrarsamningur
14. október 2019
Hvalfjarðarsveit hefur endurnýjað rekstrarsamning við Ravisa ehf. um rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum fyrir árið 2020 en á fundi sveitarstjórnar þann 10. september var ákveðið að ganga til samninga við Ravisa ehf.
Fyrirtækið sá um rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum sumarið 2019 og heimsóttu ríflega 4000 gestir sundlaugina á þeim tíma sem hún var opin.
Meðfylgjandi mynd var tekin af þessu tilefni.