Fara í efni

Sundlaug Hlaðir - rekstraraðili

Rekstraraðili óskast

Hvalfjarðarsveit óskar eftir aðila til að annast rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum sumarið 2018.

Rekstraraðili skal skv. nánara samkomulagi annast:

·         Umsjón með starfsemi laugarinnar í júní, júlí og ágúst nk.

·         Annast baðvörslu, afgreiðslu, þrif, auglýsingar, innkaup á rekstrarvörum t.d. hreinlætisvörum eins og klór og að annað sem rekstrinum tengist.

Rekstraraðili skal einnig ábyrgjast að starfsmenn er annast sundlaugarvörslu hafi lokið skyndihjálparnámskeiði. Æskilegt er að starfsmenn hafi náð 20 ára aldri og geti uppfyllt skilyrði um reglur og öryggi á sundstöðum.

Umsóknum um „Rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum 2018“ skal skila á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar fyrir föstudaginn 18. maí nk. Umsóknum skal fylgja samantekt um umsækjanda m.a. fyrri störf, reynslu af rekstri og starfsmannahaldi.

Nánari upplýisingar veitir Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í síma 433-8500 eða á netfangið skuli@hvalfjardarsveit.is

 

Hvalfjarðarsveit 9. maí 2018
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.