Sumarstörf hjá Hvalfjarðarsveit
01. mars 2022
Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða í eftirfarandi sumarstörf sumarið 2022
- Umsjónarmaður Vinnuskóla.
Um er að ræða starf frá 23. maí til 19. ágúst.
Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.
- Flokkstjóri Vinnuskóla.
Um er að ræða starf frá 23. maí til 19. ágúst.
Umsækjendur skulu vera 18 ára eða eldri.
Umsóknarfrestur er til og með 18. mars nk. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vef Hvalfjarðarsveitar. Upplýsingar um störfin gefur Ása Líndal frístunda – og menningarfulltrúi í síma 433-8500 eða á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is