Sumarstörf fyrir námsmenn laus til umsóknar
Auglýst eru laus til umsóknar 2 sumarstörf fyrir námsmenn, á 18. ári og eldri, með lögheimili í Hvalfjarðarsveit. Námsmenn þurfa að vera á skráðir í nám að hausti 2021 eða verið skráðir í nám á vorönn 2021. Störfin eru m.a. hluti af atvinnuátaki sveitarfélagsins í samvinnu við Vinnumálastofnun.
Leitað er eftir áhugasömu fólki með ríka þjónustulund, metnað til að skila góðu starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum. Starfstímabil er allt að 2,5 mánuðir á tímabilinu júní til ágúst 2021. Störfin sem um ræðir eru:
Átaksverkefni í fegrun og tiltekt í sveitarfélaginu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stéttarfélags Vesturlands.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí nk.
Sótt er um í gegnum heimasíðu Hvalfjarðarsveitar, laus störf, sjá hér
Með umsókn skal fylgja vottorð um nám á vorönn 2021 eða staðfesting á skráningu í nám haustönn 2021.
Nánari upplýsingar um störfin eru veittar á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433 8500 eða á netfanginu hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is