Styrkir haust 2021-SSV
19. ágúst 2021
Atvinnuráðgjafar og menningarfulltrúi hjá SSV veita upplýsingar um styrki sem standa aðilum til boða. Umsóknafrestur er eftirfarandi:
- Uppbyggingasjóður Vesturlands – 24. ágúst
- Fyrir hverja? Lögráða einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir eða sveitarfélög á Vesturlandi.
- Til hvers? Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningar- og hinsvegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi
- Myndlistarsjóður – 23. ágúst kl. 16:00
- Undirbúningsstyrkir– Undirbúningsstyrkir eru veittir til undirbúnings og þróunar viðamikilla verkefna sem síðar geta sótt um styrk til framkvæmdar.
- Sýningarverkefni – Styrkir til sýningarverkefna. Með verkefni er átt við viðburð sem fer fram á afmörkuðu tímabili með skilgreint upphaf og endi.
- Útgáfustyrki, rannsóknarstyrki og aðra styrki – Útgáfustyrkir, rannsóknarstyrki og aðrir styrkir eru veittir til rannsókna á verkum íslenskra listamanna og til útgáfu rita um íslenska listasögu og verk myndlistarmanna auk annarra opinna verkefna sem ekki falla undir aðra liði.
- Styrkveitingar ANR – 31. ágúst
- Til hvers? Styrkir til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
- Hljóðritasjóður – 15. september kl. 15:00
- Fyrir hverja: Tónlistarmenn, jafnt einstaklinga sem hljómsveitir, útgáfufyrirtæki og aðra er koma að hljóðritun tónlistar.
- Til hvers? Hljóðritasjóður veitir styrki til hljóðritunar nýrrar, frumsamdrar tónlistar sem stuðla á að nýsköpun. Veittir eru styrkir í almenn verkefni og þróunarverkefni.
- Tækniþróunarsjóður: Vöxtur/Sprettur – 15. september kl. 15:00
- Fyrir hverja: Lítil og meðalstór fyrirtæki
- Til hvers? Vöxtur er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar. Sprettur er öndvegisstyrkur innan Vaxtar.
- Tækniþróunarsjóður: Sproti – 15. september kl. 15:00
- Fyrir hverja? Ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla
- Til hvers? Til að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
- Tækniþróunarsjóður: Markaðsstyrkur – 15. september kl. 15:00
- Fyrir hverja? Markaðsstyrkur er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af veltunni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.
- Til hvers? Hægt er að sækja um styrk vegna sérstaks markaðsátaks en einnig uppbyggingu innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.
- Rannís-Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna – 1. október kl. 23:59
- Fyrir hverja? Fyrirtæki sem eru eigendur rannsókna- eða þróunarverkefna. Háskólar og stofnanir teljast ekki fyrirtæki í skilningi þessara laga.
- Til hvers? Fyrirtæki sem hafa fengið staðfestingu Rannís á rannsókna- eða þróunarverkefni eiga rétt á frádrætti á tekjuskatti skv. lögum nr. 152/2009. Sé álagður tekjuskattur lægri en ákvarðaður frádráttur, eða lögaðila ekki ákvarðaður tekjuskattur vegna skattalegs taps, þá er frádrátturinn greiddur út.
- Listamannalaun – 4. október kl. 15:00
- Fyrir hverja? Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld.
- Til hvers? Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög.
- Sviðslistasjóður – 4. október kl. 15:00
- Fyrir hverja? Atvinnusviðslistahópa
- Til hvers? Veittir eru styrkir til einstakra verkefna.
- Framkvæmdasjóður ferðamannastaða – byrjun október
- Fyrir hverja? Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
- Til hvers? Annars vegar vegna (Nýrrar) þjónustu/aðstöðu á ferðamannastað / ferðamannaleið. Hins vegar vegna úrbóta vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið.
- Tónlistarsjóður – 1. nóvember kl. 15:00
- Fyrir hverja? Tónlistarfólk, hljómsveitir, kóra og aðra er koma að tónlistarflutningi.
- Til hvers? Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Tónlistardeild veitir styrki til almennrar tónlistarstarfsemi, en markaðs- og kynningardeild veitir styrki til kynningar og markaðssetningar á tónlist og tónlistarfólki hér á landi og erlendis.
Athygli skal vakin á því að listinn er ekki tæmandi skrá yfir alla styrki sem eru í boði. Ábendingar um fleiri sjóði skal senda á svala@ssv.is
Mikilvægt er að vanda vel til verka þegar sótt er um styrki. Á vefnum Frumkvodlar.is eru gefin góð ráð til að hafa í huga varðandi styrkumsóknir. Áttavitinn hefur einnig gefið út leiðarvísi um hvernig maður skal sækja um styrki, nánari upplýsingar hér.
Atvinnuráðgjafar og menningarfulltrúi hjá SSV aðstoða umsækjendur við umsóknir og veita ráðgjöf. Nánari upplýsingar er að finna á síðu atvinnuráðgjafar og menningarfulltrúa hjá SSV.