Stuðningsfjölskylda óskast
01. febrúar 2016
Félagsþjónusta Hvalfjarðarsveitar auglýsir eftir fjölskyldu í Hvalfjarðarsveit, Akranesi eða Borgarnesi sem er tilbúin að gerast stuðningsfjölskylda fyrir barn tvo sólarhringa á mánuði gegn ákveðnu gjaldi. Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að hafa barnið hjá sér í umsaminn tíma á mánuði og láta því líða vel. Allar frekari upplýsingar veitir félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar í s.433-8500.
Félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar