Störf í íþróttamiðstöðinni Heiðarborg
12. júlí 2023
Starfsfólk óskast til starfa við íþróttamiðstöðina Heiðarborg frá 10. ágúst nk. til 9. júní 2024.
Störfin eru eftirfarandi:
75% staða, vinnutími er frá kl. 08:00-14:00 alla virka daga. Um er að ræða tvö störf.
Helstu verkefni:
- Umsjón með íþróttahúsi
- Öryggisgæsla við sundlaug
- Aðstoð við nemendur/gesti
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Hafa náð 18 ára aldri
- Standast hæfnispróf sundstaða
- Þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Umsóknarfrestur er til 4. ágúst 2022
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Líndal Hinriksdóttir í síma 433-8500 eða á netfanginu fristund@hvalfjardarsveit.is. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á https://www.hvalfjardarsveit.is/is/stjornsysla/eydublod/umsokn-um-atvinnu. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf.