Störf án staðsetningar
22. júní 2021
Við viljum vekja athygli á því að Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið er núna að auglýsa á Starfatorgi störf án staðsetningar.
Sjá auglýsingar:
–Sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
-Verkefnastjóri á sviði sveitarstjórnarmála
Víða á Vesturlandi er húsnæði þar sem boðið er upp á vinnurými fyrir fólk sem vinnur störf án staðsetningar. Á vef Byggðastofnunar er mælaborð sem sýnir staðsetningar á húsnæði þar sem boðið er upp á vinnurými. Þar má meðal annars finna Stjórnsýsluhúsið, Innrimel 3, Melahverfi, Hvalfjarðarsveit.