Starfsmaður óskast til starfa við íþróttamiðstöðina Heiðarborg
13. ágúst 2020
Starfsmaður óskast í 69% starf við íþróttamiðstöðina Heiðarborg frá 27. ágúst 2020. Um er að ræða opnunartíma fyrir almenning. Vinnutími er frá kl. 15:45 - 21:15 mánudaga til fimmtudaga og á laugardögum frá kl. 09:45-15:15. Starfið hentar vel með námi.
Helstu verkefni:
- Umsjón með íþróttahúsi
- Öryggisgæsla við sundlaug
- Aðstoð við gesti
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Hafa náð 18 ára aldri
- Standast hæfnispróf sundstaða
- Þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
Umsóknarfrestur er framlengdur til 20. ágúst 2020.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Líndal Hinriksdóttir í síma 842 5585. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.