Starfsmaður óskast í ræstingar við Leikskólann Skýjaborg
21. mars 2023
Laus er staða ræstingar við leikskólann Skýjaborg Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða um 38% starf (3,05 klst samkvæmt uppmælingu) og fer fram á tímabilinu 16:15 – 19:18 eða eftir samkomulagi, fimm daga vikunnar.
- Reynsla af vinnu við ræstingar æskileg.
- Hreinlæti í fyrirrúmi.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Starfið hentar öllum kynjum.
Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknarfrestur er til 10. apríl nk. og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Ráðið er í starfið frá lok apríl.
Laun samkvæmt SNS og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfangi hér að ofan.