Starfsmaður óskast í afleysingar
06. apríl 2022
Starfsmaður óskast strax í afleysingar við íþróttamiðstöðina Heiðarborg til maíloka 2022.
Helstu verkefni:
- Umsjón með íþróttahúsi og sundlaug
- Aðstoð við börn
- Klefavarsla
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Hafa náð 18 ára aldri
- Þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022.
Nánari upplýsingar veitir Ása Líndal Hinriksdóttir, fristunda- og menningarfulltrúi í síma 842 5585. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá.