Fara í efni

Starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu í Hvalfjarðarsveit

Félagsþjónusta Hvalfjarðarsveitar óskar eftir að ráða starfsmann í félagslegri heimaþjónustu. Um er að ræða tímavinnu sem snýr að almennum heimilisþrifum en verkefnin geta verið mjög einstaklingsbundin allt eftir þörfum þjónustuþega. Mikilvægt er að viðkomandi starfsmaður hafi áhuga og ánægju af mannlegum samskiptum. Æskilegt væri að viðkomandi hafi reynslu af því að starfa með fólki. Hægt er að nálgast atvinnuumsókn á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar hér.

Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2015

Nánari upplýsingar veitir Arndís Halla Jóhannesdóttir, félagsmálastjóri í s.433-8500 eða í tölvupósti felagsmal@hvalfjardarsveit.is.