Fara í efni

Starfsemi stofnana í gildandi takmörkunum samkomubanns

Frá 31. október til og með 17. nóvember taka gildi hertari reglur þar sem fjöldatakmarkanir verða 10 manns í stað 20 áður.  Nálægðarmörk eru 2 metrar og grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðarmörk. Andlitsgríma þarf að hylja bæði nef og munn. Börn fædd 2011 og síðar eru undanþegin 2 metra reglu og  grímuskyldu.  

Á meðan ofangreindar reglur gilda verður starfsemi stofnana Hvalfjarðarsveitar með eftirfarandi hætti:   

Heiðarskóli, grunnskóli:

  • Skert skólastarf, kennsla frá kl. 8:10 – 11:40.
  • Frístund opin fyrir börn í 1. – 4. bekk frá 11:40 – 15:30, þeir foreldrar sem þurfa, hafa möguleika á að koma barni að í frístund með styttri fyrirvara en gengur og gerist.
  • Utanaðkomandi heimsóknir ekki leyfðar nema í samráði við skólastjóra, ávallt grímuskylda utanaðkomandi aðila.
  • Grímuskylda í skólabílum hjá nemendum í 5. – 10. bekk.
  • Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og þá í samráði við skólastjóra, ávallt grímuskylda.
  • Foreldrar og aðstandendur sem eru sjálfir að koma með eða sækja sitt barn skulu ekki koma inn í skólann heldur hringja í síma 433-8525 á skólatíma (8:10 – 13:30) og síma 833-9862 á frístundatíma (13:30 – 15:30 mán - fim). Starfsmenn skólans sjá um að taka á móti börnum við aðalinngang eða fylgja börnum út.

Skýjaborg, leikskóli:

  • Hefðbundið skólastarf
  • Utanaðkomandi heimsóknir ekki leyfðar nema í samráði við leikskólastjóra
  • Tekið er á móti börnum og þau sótt við útidyr. Foreldrar mega ekki koma inn í leikskólann (Gott að banka á glugga á deildum ef starfsmaður er ekki við)
  • 7:30-8:15: Öll börn mæta við aðalútidyr Regnboga
  • 8:15-9:00: Dropabörn mæta við útidyr Dropa
  • 14:00-15:15: Dropabörn sótt við útidyr Dropa
  • 15:15-16:30: Öll börn sótt við aðalútidyr Regnboga
  • Í lok dags eru börnin úti á skólalóð ef aðstæður leyfa
  • Ekki þarf að taka öll útiföt heim á hverjum degi. Gott að fá fötin í góðum pokum sem auðvelt er að ganga um
  • Foreldrar sem ekki geta haldið 2 metra fjarlægð við starfsfólk, þegar komið er með börn og þau sótt, þurfa að hafa andlitsgrímu   

  Heiðarborg, íþróttahús og sundlaug:

  • Lokað

 Félagsmiðstöð 301

  • Verður með rafrænum hætti næstu tvær vikurnar

 Heimaþjónusta:

  • Óbreytt fyrirkomulag og þjónusta

Félagsstarf aldraðra:

  • Sundleikfimi fellur niður um óákveðinn tíma
  • Opnu húsi í Miðgarði frestað um óákveðinn tíma

 Stjórnsýsluhús:

  • Hefðbundin starfsemi
  • Óbreyttur opnunartími en biðlað til fólks að koma einungis ef brýn þörf er á
  • Þeir sem eiga erindi eru hvattir til að nýta síma og/eða tölvupóst eins og kostur er

 Félagsheimili:

  • Óbreytt rekstrarfyrirkomulag

Stöndum saman og sinnum sóttvörnum, hugum hvert og eitt að eigin smitvörnum en mikilvægt er að þvo hendur reglulega, spritta, virða nálægðartakmarkanir og halda sig heima verði einkenna vart.

Leiki grunur á smiti skal strax hafa samband við heilsugæslu í gegnum síma, við netspjall á www.heilsuvera.is eða við Læknavakt í síma 1700.

Við erum öll almannavarnir og með samhentum aðgerðum erum við sterkari og öflugri.

Munið að fjöldatakmarkanir gilda bæði í opinberu rými og í einkarými (þó ekki um heimilisfólk á heimili sínu).