Starf í íþróttamiðstöðinni Heiðarborg
Starfsmaður óskast til starfa við íþróttamiðstöðina Heiðarborg sem fyrst og til 9. júní 2023.
71% staða, vinnutími er frá kl. 15:45-21:15 mánudaga til fimmtudaga og á laugardögum frá kl. 09:45-15:15. Starfið hentar vel með námi. Til greina kemur að tveir aðilar skipti með sér starfinu.
Helstu verkefni:
- Umsjón með íþróttahúsi
- Öryggisgæsla við sundlaug
- Aðstoð við gesti
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Hafa náð 18 ára aldri
- Standast hæfnispróf sundstaða
- Þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Umsóknarfrestur er til 16 september.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Líndal Hinriksdóttir í síma 433-8500 eða á netfanginu fristund@hvalfjardarsveit.is. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á https://www.hvalfjardarsveit.is/is/stjornsysla/eydublod/umsokn-um-atvinnu. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf.