Sorphirða - orðsending frá Íslenska gámafélaginu.
10. janúar 2020
Vegna óveðurs síðustu daga hefur sorphirða á öllu okkar svæði riðlast. Fíflholt hefur einnig verið lokað í 3 daga.
Sorphirða föstudagsins í Hvalfjarðarsveit færist til laugardags og hluti af henni jafnvel til mánudags vegna slæmrar spár ef hún gengur eftir. Það ætti að klárast fyrir hádegi á mánudag ef svo fer.