Sorphirða
23. desember 2019
Sorphirðudagatal 2020 hefur verið gefið út fyrir Hvalfjarðarsveit. Sú breyting er að losunardögum á grænu tunnunni hefur verið fjölgað. Dagatalið má sjá hér.
Einnig hefur ný gjaldskrá fyrir sorphirðu og urðun sorps í Hvalfjarðarsveit verið samþykkt af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og birt í Stjórnartíðindum. Gjaldskrána má sjá hér.