Fara í efni

Snjómokstur í Hvalfjarðarsveit 2018

Allt að fjórum sinnum á almanaksári greiðir Hvalfjarðarsveit fyrir snjómokstur / hálkueyðingu að heimreiðum íbúðarhúsa í dreifbýli þar sem föst búseta er.

Ábúendur skulu panta mokstur / hálkueyðingu með eins sólarhrings fyrirvara svo hægt sé að tryggja snjómokstur / hálkueyðingu eins og óskað er eftir.

Íbúar eldri en 67 ára og örorkulífeyrisþegar, m.v. 75% örorku geta leitað til sveitarfélagsins um mokstur / hálkueyðingu á heimreiðum umfram fjögur skipti. Fyrir slíka þjónustu þarf að greiða 50% af taxta viðkomandi verktaka. 

Hvalfjarðarsveit greiðir ekki kostnað vegna snjómoksturs / hálkueyðingar sem til hefur verið stofnað án hennar samþykkis að undanskildu, ef beiðni um mokstur / hálkueyðingu kemur frá lögreglu, slökkviliði, lækni eða sjúkraflutningsmönnum vegna neyðarflutninga, skal þá strax sinna því.

Hægt er að nálgast viðmiðunarreglur varðandi snjómokstur í Hvalfjarðarsveit, Hér !

 

Hægt er að panta heimreiðamokstur / hálkueyðingu:

-alla virka daga frá kl. 10-15 í síma 433-8500.

-alla daga frá kl. 8-22 í síma 896-5141.

 

Bestu kveðjur

Guðný og Marteinn