Vegagerðin og Hvalfjarðarsveit hafa samið við Miðfellsbúi ehf. að sjá um snjómokstur og hálkueyðingu í sveitarfélaginu fyrir tímabilið haust 2019 til vors 2020. Alls sendu fimm verktakafyrirtæki inn verðtilboð og þakka Vegagerðin og Hvalfjarðarsveit þeim aðilum fyrir þátttökuna.