Fara í efni

Slökkvitæki til yfirferðar

Dagana 21.10.2024 – 25.10.2024 verður tekið á móti slökkvitækjum til yfirferðar og hleðslu á þeim tækjum sem þörf er á.
Fyrirtækið Eldvörn á Akranesi hefur umsjón með verkinu.
Hægt er að koma með slökkvitæki á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar frá kl. 08:00-15:00.
Eldvörn býður upp á að hægt er að skila og sækja slökkvitæki á starfsstöð þeirra að Vesturgötu 72, Akranesi þessa daga frá kl. 16:00 – 17:00.

Hvalfjarðarsveit greiðir fyrir hleðslu á einu 6 kg slökkvitæki á hverju heimili en í boði er að koma með fleiri tæki af heimili og aðili greiðir þá fyrir það.  Einnig verður í boði að kaupa slökkvitæki, reykskynjara og eldvarnarteppi.

Hvetjum alla til að huga vel að eldvörnum á sínu heimili.

Eigendur geta sótt slökkvitækin sín þremur virkum dögum eftir að þeir hafa afhent þau á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar frá kl. 08:00-15:00.

Aðeins þau íbúðarhúsnæði sem eru skráð með fasta búsetu geta nýtt sér þessa þjónustu.

Til að fá nánari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is