Fara í efni

Skipulags- og umhverfisfulltrúi ráðinn

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur ráðið Lulu Munk Andersen byggingafræðing í starf skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar en hún tekur við af Ólafi Melsted í dag 4. júlí 2016. 

Lulu hefur starfað sem Skipulags- og byggingarfulltrúi í Borgarbyggð frá  árinu 2013 og í Fjarðabyggð frá árinu 2006. Lulu er dönsk, fædd árið 1966, gift Gunnari Birni Gunnarssyni og eiga þau 8 börn saman.