Samstarf við N4
22. maí 2020
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti í mars sl. áframhaldandi samstarf við sjónvarpsstöðina N4 vegna þáttagerðarinnar Að vestan fyrir árið 2020. Samstarfið hljóðaði upp á styrk að fjárhæð 500.000 kr.
Hvalfjarðarsveit hefur verið í samstarfi við N4 um þessa þætti frá árinu 2016.
Búið er að setja slóð/krækju á þá liði úr þáttunum þar sem íbúar eða fyrirtæki í Hvalfjarðarsveit koma við sögu, inn á heimasíðu sveitarfélagsins og þá má sjá hér: https://www.hvalfjardarsveit.is/is/mannlif/sveitarfelagid/vidtol