Fara í efni

Rafrænir reikningar í Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit hefur ákveðið að frá og með 
1.  janúar 2025 verði eingöngu tekið við rafrænum reikningum. Samhliða verður hætt að senda út reikninga til greiðenda á pappírsformi.

Markmiðið með breytingunni er m.a. að auka skilvirkni í skráningu, greiðslu reikninga og lágmarka villur. Hvalfjarðarsveit er með þessu að taka þátt í þeirri tækniþróun og umhverfisstefnu sem lagt hefur verið upp með að sveitarfélög fylgi.

Innsending reikninga
Alla reikninga til Hvalfjarðarsveitar skal senda með rafrænum hætti í gegnum skeytamiðlun og vakin er athygli á að ekki er nægjanlegt að senda kröfu í banka. Vinsamlegast ekki senda pappír samhliða rafrænum reikningum.

Hvalfjarðarsveit hvetur sendendur reikninga til þess að huga að uppsetningu rafrænna lausna fyrir sinn rekstur ef þeir eru ekki nú þegar komnir með rafrænt bókhald. Mörg bókhaldskerfi bjóða uppá að senda reikninga með skeytamiðlun. Þjónustuaðilar fjárhagskerfa og skeytamiðlarar veita nánari upplýsingar um rafræna reikninga og hvaða leiðir eru í boði. Fyrir aðila sem eru ekki með bókhaldskerfi má benda á ýmsar veflausnir þar sem hægt er að skrá reikninga og senda rafrænt.

Nánari upplýsingar og þau gögn sem reikningar þurfa að innhalda má finna hér.

Reikningar frá Hvalfjarðarsveit
Unnið er að því að allir útgefnir reikningar frá sveitarfélaginu verði inni á www.island.is líkt og álagningaseðlar fasteignagjalda frá Hvalfjarðarsveit hafa verið undanfarin ár eða í appi island.is sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Kröfur stofnast í netbanka viðkomandi einstaklings eða fyrirtækis.

Sé þess sérstaklega óskað er hægt að fá reikninga senda í pósti á pappírsformi eða í tölvupósti.

Beingreiðslur í banka
Bankar bjóða upp á þá þjónustu að skuldfæra reglubundna reikninga beint af bankareikningi, greiðandi hefur þá samband við sinn viðskiptabanka til að skrá sig í beingreiðslu.

Rafrænir reikningar frá Hvalfjarðarsveit
Fyrirtæki og lögaðilar sem taka á móti rafrænum reikningum með skeytamiðlun eru hvattir til að óska eftir því að fá senda rafræna reikninga, beiðni skal senda á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is

Allar nánari upplýsingar gefur starfsfólk Hvalfjarðarsveitar – vinsamlegast hafið samband á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is

Senda rafrænar reikning, smellið hér