Opnir kynningarfundir: Samtal og samstarf í ferðamálum á Vesturlandi
04. mars 2021
Markaðsstofa Vesturlands verður með fund á Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit mánudaginn 8. mars kl. 10:00.
Til umfjöllunar verður Áfangastaðaáætlun Vesturlands og áhersluverkefni ferðamála 2021-2023. Áætlunin fjallar um áherslur, uppbyggingu og þróun ferðamála í landshlutanum næstu þrjú árin. Markmið áætlunarinnar er meðal annars að stuðla að jákvæðum framgangi ferðamála, samræmdri uppbyggingu innviða og virkri vöruþróun.
Skýrslan er einungis gefin út á rafrænu formi og hægt er að nálgast hana hér.
Allir hagaðilar og áhugafólk velkomið. - munið sóttvarnarreglur.
Aðra fundi og fundardaga má sjá hér fyrir neðan:
Snæfellsnes – fimmtudagur 4. mars.
- Breiðablik – Gestastofa Snæfellsness kl. 10:30
- Átthagastofa í Ólafsvík kl. 13:00
- Samkomuhúsið í Grundarfirði kl. 15:00
- Ráðhúsloftið í Stykkishólmi kl. 17:00
Akranes – föstudagur 5. mars.
- Breið – nýsköpunarsetur kl. 13:00
Borgarbyggð - mánudagur 8. mars.
- Hótel Húsafell kl. 13:30
- Hótel B59 í Borgarnesi kl. 17:00
Dalir – þriðjudagur 9. mars.
- Vínlandssetrið í Búðardal kl. 17:00