Opinn kynningarfundur
22. júní 2020
Í samræmi við ákvæði starfsleyfa Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu, boðar Umhverfisstofnun til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar þriðjudaginn 23. júní kl. 15:00.
Fundurinn verður í fjarfundarsniði þetta árið og streymt í gegnum Teams forritið. Hlekkur á fundinn verða samdægurs á vef og Facebooksíðu stofnunarinnar.
Dagskrá fundar
Fundarstjóri: Halla Einarsdóttir
Niðurstöður eftirlits 2019
Einar Halldórsson
Niðurstöður Umhverfisvöktunar á Grundartanga 2019
Eva Yngvadóttir