Opinn fundur vegna sveitarstjórnarkosninga 2022 í Hvalfjarðarsveit
11. maí 2022
Opinn fundur með frambjóðendum vegna sveitarstjórnarkosninga verður haldinn í Miðgarði miðvikudaginn 11. maí kl. 20:00.
Þar gefst þeim sem gefa kost á sér til setu í sveitarstjórn tækifæri til að kynna sig og málefni sín og íbúum gefst tækifæri á að kynnast frambjóðendum og spyrja þá spurninga.
Látum okkur málin varða og mætum sem flest.