Félagsstarf 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit
24. september 2024
Opið hús eldri borgara verður í félagsheimilinu Miðgarði fimmtudaginn 26. september kl. 13:00. (ath breyttan tíma)
Hildur Aðalbjörg Ingadóttir sjúkraþjálfari verður með fyrirlestur um betri heilsu og sjálfshjálp sem kallast "Drullusokkur er allra meina bót".
Gripið í spil eða handavinnu ef áhugi er fyrir hendi.
Spjall og kaffiveitingar.
Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta á nýjum tíma 😊