Opið hús 60 ára og eldri í Hvalfjarðasveit
15. janúar 2024
Opið hús verður í Miðgarði miðvikudaginn 17. janúar n.k kl. 14:00.
Helga Rún Sumarliðadóttir söngkona frá Akranesi kemur og syngur íslensk dægurlög.
Lesið verður upp úr bók um Sæmund Sigmundsson, rútubílstjóra sem Bragi Þórðarson skráði.
Gripið verður í spil fyrir þá sem vilja.
Kaffiveitingar.
Hlökkum til að sjá ykkur.