Nýr umhverfisfulltrúi
25. mars 2022
Arnheiður Hjörleifsdóttir hefur verið ráðin sem umhverfisfulltrúi í Hvalfjarðarsveit.
Arnheiður er menntuð í umhverfisfræðum og hefur áratugareynslu af störfum við umhverfis- og náttúrverndarmál auk opinberrar stjórnsýslu. Hún hefur m.a. starfað við umhverfisráðgjöf og kennslu auk eigin búrekstrar með ferðaþjónustu.
Arnheiður mun hefja störf 1. apríl nk.
Hvalfjarðarsveit býður Arnheiði velkomna til starfa.